Arnar Þór Björnsson
- hinn eini sanni...


Blogg

common COMMENT

17.3.2010

Í tilefni afmælis Bjornssonar og Chuck Norris

Bjornsson 22 ára þann 5.mars

Chuck Norris 70 ára þann 10.mars


1. Chuck Norris hefur talið upp í hið óendanlega...tvisvar.
2. Bjornsson heimsótti eitt sinn Jómfrúareyjar. Nú heita þær bara Eyjar.
3. Tárin úr Chuck Norris geta læknað krabbamein. Hann hefur því miður aldrei grátið.
4. Chuck Norris sefur ekki. Hann bíður.
5. Á eftir 31. mars kemur 2. apríl á dagatalinu hans Chuck Norris; það platar enginn Chuck Norris.
6. Þegar skrímsli fara að sofa leita þau að Chuck Norris undir rúminu.
7. Eitt sinn beit kóbraslanga Chuck Norris í fótinn. Eftir margra daga þjáningu dó slangan.
8. Chuck Norris dó fyrir tíu árum. Maðurinn með ljáinn hefur ekki enn safnað kjarki í að segja honum það.
9. Chuck Norris lék upphaflega hlutverkið í sjónvarpsþáttunum 24. Það þurfti hins vegar að skipta honum út eftir að hann var búinn að kála öllum hryðjuverkamönnunum á 12 mínútum og 37 sekúndum.
10. Chuck Norris getur skellt snúningshurðum.
11. Gíraffar urðu til eftir að Chuck Norris gaf hesti utan undir.
12. Súperman klæðist alltaf Chuck Norris náttfötum.
13. Chuck Norris getur kreist appelsínusafa úr sítrónu.
14. Chuck Norris les ekki bækur. Hann starir á þær þangað til að hann fær þær upplýsingar sem hann vill.
15. Chuck Norris sefur með ljósin kveikt. Ekki af því að hann er myrkfælinn, heldur er myrkrið hrætt við Chuck Norris.
16. Chuck Norris sefur hjá öllum konum í heimi á mánaðarfresti án þess að nokkur viti. Afleiðingin er vikublæðing hjá konum.
17. Hundurinn hans Chuck Norris hirðir upp sinn eigin skít. Chuck Norris tekur ekki skít frá neinum.
18. Chuck Norris getur kyrkt menn með þráðlausum síma.
19. Chuck Norris spilar á fiðlu með píanói.
20. Árið 1991 spilaði Chuck Norris 18 holu golfvöll á 14 höggum, sem er tveimur höggum frá því besta.
21. Chuck Norris var eitt sinn kærður fyrir morðtilraun. Málinu var umsvifalaust vísað frá því Chuck Norris gerir ekki tilraun til morðs.
22. Þegar Chuck Norris borðar epli byrjar hann á kjarnanum.
23. Chuck Norris býr til snjókarl úr rigningu.
24. Chuck Norris spilar rússneska rúllettu með fullhlaðna skammbyssu - og vinnur alltaf.
25. Chuck Norris getur drekkt fiskum.
26. Chuck Norris kýldi eitt sinn mann í sálina.
27. Þegar Chuck Norris gengur inn í herbergi kveikir hann ekki ljósin - hann slekkur á myrkrinu.
28. Eina skiptið sem Chuck Norris hafði rangt fyrir sér var þegar hann hélt að hann hafði gert mistök.
29. Bjornsson er ekki vaxinn niður eins og hestur, heldur eru hestar vaxnir niður eins og Bjornsson
30. Það var talið afrek þegar maður fór niður Niagra fossa í tunnu og lifði það af. Chuck Norris fór upp Niagra fossa í pappakassa.
31. Chuck Norris spáir ekki í framtíðina; framtíðin gerir það sem Chuck Norris segir.
32. Flestum karlmönnum er sama þótt konur þeirra dreymi um Bjornsson í rúminu. Þeir gera það nefnilega líka.
33. Chuck Norris fór eitt sinn til mars. Þess vegna eru engin merki um líf á þeirri plánetu.
34. Kínamúrinn var byggður til að halda Chuck Norris í skefjum. Það mistókst.
35. Ef þú átt þúsund krónur og Chuck Norris þúsund krónur, þá á Chuck Norris meiri pening en þú.
36. Chuck Norris er eini maðurinn sem hefur pantað BicMac á Burger King og fengið hann.
37. Chuck Norris gefur alltaf blóð til blóðbanka, bara ekki hans eigin.
38. Ef blað vinnur stein, steinn vinnur skæri og skæri vinna blað, hvað vinnur allt saman? Chuck Norris.
39. Chuck Norris drekkur sýru til að lækna brjóstsviðann.
40. Ef þú vilt vita hverjir óvinir Chuck Norris eru, skoðaðu þá listann yfir tegundir í útrýmingarhættu.


Hornet

Skrifað 17.3.2010 kl. 12:14 af Bjornsson

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.3.2010

Í túr en ekki "á túr" !

Fyrsta vitjun var í dag á grásleppuveiðunum og það var ekki gott hljóðið í mönnum. Trossurnar orðnar 3 nátta og lítið sem ekkert í þeim. Það endaði með því að það var hætt að draga eftir 5 trossur og haldið í land. Leyfa þessu að liggja aðeins lengur. Náðum nú að skrapa saman í eina tunnu.

Annars er það helst í fréttum að mamma er búin að koma Öllum fötunum mínum fyrir á heimilinu og vildi halda því fram að dóttir sín hafi verið að flytja heim. EMMETT, á svo rosa mikið af fötum....NOT
Skrýtið að vera komin svona heim á Hótel Mömmu, hérna gengur allt sinn vanagang, bæði heimilislífið og bæjarlífið. Aaalveg Stressless líf. Alltaf kaffi og meððí og svo vantar nú ekki uppá matarbyrgðirnar hjá henni móður minni, Ó nei.  Bónaði B1R í gær og hef barasta lagt honum hér fyrir utan í Beverly Hills. Sé ekki tilganginn í notkun á slíku tryllitæki hér í bæ. Maður er 10 min að labba út í sundlaug heiman frá, og það er það lengsta sem maður þarf að rölta hérna, svo það er bara verið að vinna í því að koma sér í labbi form. Það er svosem ekki mikil afþreying hérna sem maður getur drepið tímann með, þó svo að maður mæti badminton við og við. Jafnvel að maður fari að rífa í járnið aftur, aldrei að vita ! En það þarf svosem ekki mikil til að gleðja mann, maður er svo meðalgreindur mannapi, prumpubrandarar eru nóg til að það stökkvi bros á mann, jafnvel hlátur....


En víst að við erum að tala um "túr" þá vil ég segja ykkur ástæðuna fyrir túrnum ykkar kvenmenn!! Chuck Norris sefur hjá öllum konum í heimi á mánaðarfresti án þess að nokkur viti. Afleiðingin er vikublæðing hjá konum ;-D


Hornet out

Skrifað 13.3.2010 kl. 21:54 af Bjornsson

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.2.2010

Hvaðan kom hann ? Hvert er hann að fara ? Hvað er hann ?

Síðasta bloggfærsla 14.maí 2009. Spurning um að rifja aðeins upp.
Svo við hlaupum fljótt yfir síðustu ár þá er það ca. svona.
Haustið 2008 stundaði ég Viðskiptalögfræði á Bifröst, hætti þar um jólin (náði öllum prófunum NotaBene). Hóf smíðanám í tækniskólanum vorönn 2009, var í álverinu um sumarið, aftur í smíðina á haustönn og hætti þar um jólin. Er búinn að vera í álverinu frá áramótum og er núna í þann mund af flytja á Siglufjörð til að fara á Grásleppu ;)
Hápunktur síðasta árs var þegar Anna María systir gifti sig, honum Óskari Þórðarsyni, 18.júlí og var það snilldar dagur út í gegn, svo ekki sé nú meira sagt. Þar auðvitað sló kallinn í gegn, bæði sem bílstjóri brúðhjónanna og skemmtikraftur um kvöldið ! Þess má geta að ég fékk lánaðann Benz jeppann hjá Þresti og Kollu vinum mínum og Já, ég fucking Tannburstaði hann fyrir daginn...



Gömlu flott á því

En já...þetta er bara svona til að starta þessu bloggfári sem framundan er.

Góðar stundir

Skrifað 23.2.2010 kl. 14:30 af Bjornsson

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 9
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 32
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 31810
Samtals gestir: 8600
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 06:51:45


Um mig

Nafn:

Arnar Þór Björnsson

Farsími:

6 15 15 56

MSN netfang:

bjornsson_@hotmail.com

Afmælisdagur:

5.mars

Heimilisfang:

Hávegur 24

Staðsetning:

Reykjavík

Um:

Drullutussu nettur brundköggull

Tenglar